Skip to main content

Almenn leiðsögn um grunnsýninguna Þjóð verður til

Í heimsókninni er lögð áhersla á að nemendur upplifi Þjóðminjasafnið sem áhugaverðan stað til að heimsækja og kynnist þeim fræðslubrunni sem grunnsýning Þjóðminjasafnsins er. Leitast er við að efla samfélagsvitund nemendanna og ýta undir hæfni þeirra til að skilja veruleikann, umhverfið, samfélagið, söguna og menninguna út frá sýningargripum og þeim frásögnum sem þeir geyma.

Nánari upplýsingar og bókanir á heimasíðu Þjóðminjasafns Íslands: https://www.thjodminjasafn.is/skolaheimsoknir/grunnskoli-midstig eða í gegnum netfangið kennsla@thjodminjasafn.is

Skipuleggjandi:
Þjóðminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Listir
Læsi
Saga
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
5 ára
  - 18 ára