Skip to main content

Baðstofulíf

Hvernig var daglegt líf á sveitaheimilum á Íslandi fram á 20. öld, svo sem matseld, tóvinna og leikur? Nemendur fá að handfjatla eftirgerðir gripa til að setja sig í spor heimilisfólks torfbæja við leik og störf. Baðstofa er skoðuð og vöngum velt yfir því hvernig lífið hafi verið áður fyrr. Að heimsókn lokinni hafa nemendur fengið innsýn í daglegt líf í torfbæ; verkin inni og úti, svo sem handavinnu og sjálfsþurftarbúskap, auk frístunda, og geta borið saman við sinn eigin raunveruleika.

Nánari upplýsingar og bókanir á heimasíðu Þjóðminjasafns Íslands: https://www.thjodminjasafn.is/skolaheimsoknir/grunnskoli-yngsta-stig eða í gegnum netfangið kennsla@thjodminjasafn.is

Skipuleggjandi:
Þjóðminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Listir
Læsi
Saga
Tímabil:
Janúar
  - Nóvember
Aldur:
6 ára
  - 9 ára