Bókasafnsheimsókn fyrir skólahópa og frístundaheimili
Við bjóðum skólahópum og frístundaheimilum í heimsókn í barna- og/eða unglingadeildina. Bæði geta hópar komið á eigin vegum eða að starfsmaður safnsins tekur á móti hópnum og sýnir allt það skemmtilega sem safnið hefur upp á að bjóða fyrir börn og unglinga. Lestur, spil, dútl og almenn kósíheit.
Mikilvægt er að umsjónarmenn hópa hafi samband og bóki hóp sem er fleiri en átta börn áður en komið er í heimsókn svo hægt sé að forðast árekstra og að börnin fái notið sín á safninu.
Nánari upplýsingar veitir:
Natalie Julia Colceriu, sérfræðingur
nataliejc@reykjavik.is | 4116170
Deila
Skipuleggjandi:
Borgarbókasafnið, Gerðubergi
Staðsetning:
Breiðholt
Efnisflokkur:
Læsi
Tímabil:
Janúar
- Nóvember
Aldur:
6 ára
- 18 ára