Bókasafnsráðgátan
Borgarbókasafnið Spönginni
Safnkynning fyrir 4. bekk að hausti.
Á nokkrum stöðum í Reykjavík er að finna stórmerkileg hús af ýmsum stærðum sem eru full af bókum, tímaritum, tónlist og fleiru. En hvað veistu um bókasöfnin? Við bjóðum skólahópum að koma og leysa þrautir og komast þannig að leyndardómum bókasafnsins. Með skemmtilegum ratleik læra börnin um uppbyggingu og þjónustu safnsins og hvaða ótal möguleika söfnin hafa upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar veitir:
Herdís Anna Friðfinnsdóttir
herdis.anna.fridfinnsdottir@reykjavik.is | 411-6230
Deila

Skipuleggjandi:
Borgarbókasafnið, Spönginni
Staðsetning:
Grafarvogur
Efnisflokkur:
Læsi
Tímabil:
September
- Nóvember
Aldur:
9 ára