Drekinn í þinghúsinu
Gengið um Alþingishúsið í fótspor dreka sem leikur þar lausum hala. Spjallað er við börnin um starfsemi þingsins og hugtakið lýðræði er kynnt. Í seinni hluta heimsóknar fara börnin í hlutverkaleik. Þar fá þau að kynnast lýðræðislegum kosningum og æfa sig í að greiða atkvæði um mál sem snerta daglegt líf þeirra.
Heimsóknin er sniðin að efsta stigi leikskóla og yngsta stigi grunnskóla.
Nánari upplýsingar og bókanir: fraedsla@althingi.is og althingi.is/skolar
Deila

Skipuleggjandi:
Alþingi
Staðsetning:
Árbær og Norðlingaholt
Efnisflokkur:
Leikir og útivist
Saga
Tímabil:
Janúar
- Desember
Aldur:
5 ára
- 7 ára