Skip to main content

Ég get

Skemmtileg sýning fyrir yngstu börnin

Ég get er ljóðræn leiksýning um það sem er mitt, þitt og okkar. Hér kynnumst við tveimur litlum manneskjum sem eru að æfa sig því að vinna saman. Þær leika sér saman, prófa sig áfram og komast að því hvað gerist þegar forsendum í leiknum er breytt. Stórskemmtileg leikhúsupplifun fyrir börn sem eru að læra á heiminn en verkið var tilnefnt til Grímuverðlauna árið 2018.
 

Sýning fyrir leikskólabörn

Þjóðleikhúsið leggur áherslu á vandað og fjölbreytt úrval leiksýninga fyrir börn og ungt fólk. Börnum í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og víðsvegar á landsbyggðinni verður boðið að kynnast töfraheimi leikhússins og sjá þessa hrífandi leiksýningu með kennurum sínum. Nánari upplýsingar: fraedsla@leikhusid.is.

Skipuleggjandi:
Þjóðleikhúsið
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Listir
Tímabil:
Mars
Aldur:
5 ára