Skip to main content

Fjársjóðsleitin í Grófinni

Fjársjóðsleitin er skapandi fræðsluverkefni fyrir nemendur í 4. til 6. bekk í grunnskóla þar sem þeir þjálfast í upplýsingaleit, auk þess að kynnast safnkosti og aðstöðu Borgarbókasafnsins Grófinni.

Við komuna á safnið les starfsmaður stutta sögu um börn sem þurfa að leita heimilda til að keppa við gráðuga galdranorn í spurningakeppni, í húfi eru allar bækur þorpsins OG einhyrningsfolald! Í kjölfarið fá börnin ævintýralegt kort af barnadeildinni sem þau nýta til að finna og merkja inn valdar bækur í ævintýraþema. Í lokin safnast hópurinn aftur saman og skreytir kortin sín.

Tilgangur fræðslunnar er að kynna fyrir nemendum starfsemi bókasafnsins, þjálfun í leit eftir stafrófsröð, heimildaleit á bókasafninu og skráningu heimilda. Unnið er út frá  hæfniviðmiðum aðalnámsskrár.

Fjársjóðskortið og grafík verkefnisins eru gerð af Eysteini Þórðarsyni, teiknara og hönnuð.

Nánari upplýsingar veitir:
Bára Bjarnadóttir, sérfræðingur
bara.bjarnadottir@reykjavik.is | 411-6100

Skipuleggjandi:
Borgarbóksafnið, Grófinni
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Læsi
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
9 ára
  - 11 ára