Skip to main content

Framhaldsskólar

Vatnið í náttúru Íslands | 2. hæð Perlunnar

Kennarar geta haft samband við safnkennara og fengið leiðsögn á sýningunni Vatnið í náttúru Íslands fyrir nemendahópa en efni sýningarinnar má nýta til kennslu í til dæmis líffræði, jarðfræði, landafræði, umhverfisfræði, þróunarfræði, heimspeki og skapandi greinum.

Framhaldsskólanemar eru hvattir til að hafa samband við sérfræðinga safnsins sem geta veitt fjölbreyttar upplýsingar á sviðum náttúrunnar.

Heimsóknin tekur um klukkustund og miðað er við að hópar séu ekki stærri en sem nemur einum bekk, eða um 25 nemendur. Fræðsla er ókeypis fyrir skólahópa og heimsóknin er sniðin að hverjum aldurshópi fyrir sig.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu safnsins og hjá safnkennurum á netfanginu kennsla@nmsi.is og í síma 5771800.  Á Fróðleiksbrunninum, nýrri fræðslusíðu Náttúruminjasafnsins má finna náttúrufræðslu og verkefni sem kjörið er að nýta til undirbúnings og eftirfylgni í tengslum við heimsóknina.

Skipuleggjandi:
Náttúruminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Læsi
Náttúra og dýr
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
16 ára
  - 18 ára