Skip to main content

Heimili listamanns / Íslenskar þjóðsögur

Safn Ásgríms Jónssonar

Heimsókn á heimili og vinnustofu Ásgríms Jónssonar myndlistarmanns, við Bergstaðastræti 74. Ásgrímur skipar mikilvægan sess í íslenskri listasögu sem brautryðjandi nútímalistar á Íslandi enda oft kallaður „faðir íslenskrar landslagslistar. Á vinnustofunni er sýning á þjóðsagnamyndum listamannsins, sagnararfi sem enn lifir og varpar ljósi á líf fólks í harðbýlu landi fyrr á öldum þar sem náttúruöflin leika stórt hlutverk. Ásgrímur var fyrstur íslenskra listamanna til að myndgera sögurnar en sjálfur ólst hann upp við lestur þeirra.

 

Markmið heimsóknar

  • Að börnin kynnist hugtökum á borð við: Myndlist, þjóðsögur, sýning og safn.
  • Að börnin nái tengingu við menningararf sinn og íslenska listasögu.
  • Að börnin fái innsýn inn í heim listamanns, heimili hans og vinnustofu.
  • Að börnin fái innblástur út frá verkum listamanns til að skapa sitt eigið verk.

 

Heimsóknin

Tekið er á móti hópnum við Bergstaðastræti 74. Börnin hengja fötin sín upp og koma sér vel fyrir í stofunni hans Ásgríms. Hópurinn myndar hring og safnkennari býður þau velkomin. Þá er Ásgrímur kynntur til sögunnar og nokkrir af hans persónulegu munum skoðaðir ásamt listaverkum sem prýða stofuna og svefnherbergið hans. Safnkennari hvetur börnin til að taka virkan þátt í samtali  og spyrja spurninga.

Vinnustofan hans Ásgríms er á efri hæð íbúðar og þar má sjá sýninguna Korriró og Dillidó, þjóðsagnamyndir. Börnin skoða sýninguna og velta fyrir sér sögum um drauga, álfa og tröll.

Að lokum fá börnin að spreyta sig sjálf á teikningum þar sem verk Ásgríms veita þeim innblástur. Teikningarnar taka þau með sér heim að lokinni heimsókn.

Heimsóknin tekur um klukkustund og miðað er við að hópar séu ekki stærri en 20 manns.

Hægt er að bóka tíma á mennt@listasafn.is

Verið velkomin í heimsókn.

Skipuleggjandi:
Listasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Listir
Læsi
Saga
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
4ra ára
  - 6 ára