Skip to main content

Heimsóknir fyrir skólahópa og frístundaheimili

Við bjóðum skólahópum og frístundaheimilum í heimsókn í barna- og/eða unglingadeildina. Bæði geta hópar komið á eigin vegum eða að starfsmaður safnsins tekur á móti hópnum og sýnir allt það skemmtilega sem safnið hefur upp á að bjóða fyrir börn og unglinga. Lestur, spil, dútl og almenn kósíheit.

Mikilvægt er að umsjónarmenn hópa hafi samband og bóki hóp sem er  fleiri en átta börn áður en komið er í heimsókn svo hægt sé að forðast árekstra og að börnin fái notið sín á safninu.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnhildur Sigurhansdóttir, sérfræðingur
gunnhildur.sigurhansdottir@reykjavik.is | 411-6270

Skipuleggjandi:
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Staðsetning:
Grafarholt og Úlfarsárdalur
Efnisflokkur:
Læsi
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
6 ára
  - 18 ára