Skip to main content

Hreyfing og leikir til að brjóta upp kennslu

„Commune sense“ er röð æfinga og leikja sem koma frá sviðslistarkennsluaðferðum og geta verið notuð í reglulegri grunnskólakennslu. Kennslu pakkinn inniheldur stutt myndbönd þar sem kennarar og nemendur geta kynnt sér æfingar og prufað þær sjálf í kennslustofunni, í göngutúr eða úti á skólalóðinni. 

Æfingunum er skipt í þrjá hluta: Wake-up, Get out there og Relax. Æfingarnar eru góðar til að efla sjálfstraust og vellíðan nemenda ásamt því að eflabekkjaranda með allskonar skemmtilegum leik.

Kennslupakkinn „Commune sense“ er á ensku og er aðgengilegur á netinu en hægt er að óska eftir kynningu frá starfsmanni Dansgarðsins í kennarastofu skólans. „Commune sense“ er samstarfsverkefni Dansgarðsins með menntastofnun í Varsjá: LXIX lyceum, Art 2 Buisness og Warsaw Film school er styrkt af EEA Iceland, Liechtenstein & Norway Grants.

 

Skipuleggjandi:
Dansgarðurinn
Staðsetning:
Komið á starfsstað
Efnisflokkur:
Leikir og útivist
Listir
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
6 ára
  - 18 ára