Skip to main content

Hvað býr í þjóðgarði?

Vatnið í náttúru Íslands | 2. hæð Perlunnar

1. - 10. bekkur

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður árið 2008 og er þjóðgarðurinn okkar allra. Við fræðumst um sérstöðu þjóðgarðsins sem felst einkum í samspili elds og íss. Skoðum náttúruperlur og skemmtilegt dýra- og plöntulíf auk þess sem við veltum fyrir okkur náttúruvernd og hvaða starfsemi fer fram í þjóðgarði.

Markmið heimsóknarinnar er að nemendur fræðist um Vatnajökulsþjóðgarð, náttúruna og kynnist hugtakinu náttúruvernd.

 

Heimsóknin tekur um klukkustund og miðað er við að hópar séu ekki stærri en sem nemur einum bekk, eða um 25 nemendur.

Fræðsla er ókeypis fyrir skólahópa og heimsóknin er sniðin að hverjum aldurshópi fyrir sig. Skráning fyrir heimsóknir á sýninguna Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar fer fram á bókunarsíðu Náttúruminjasafnsins. 

Frekari upplýsingar um fræðsluleiðina má finna á heimasíðu safnsins og hjá safnkennurum á netfanginu kennsla@nmsi.is og í síma 5771800. Á Fróðleiksbrunninum, nýrri fræðslusíðu Náttúruminjasafnsins má finna náttúrufræðslu og verkefni sem kjörið er að nýta til undirbúnings og eftirfylgni í tengslum við heimsóknina.

Skipuleggjandi:
Náttúruminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Læsi
Náttúra og dýr
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
6 ára
  - 15 ára