Skip to main content

Í spor landnámsfólks

Í heimsókninni er fjallað um landnámstímann og fornleifar frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar skoðaðar. Nemendur eru hvattir til að spyrja spurninga og tjá sig um sýningargripi, beinagrindur í kumlum og hugarheim landnámsfólks. Umræðuefnin eru margvísleg svo sem helgisiðir og trúarbrögð, heilbrigði, híbýlahættir, tíska, tæknikunnátta og lífsviðurværi. Fjallað er um daglegar athafnir út frá gripum sem þeim tengjast, svo sem hnefatafli, vopnum, silfursjóðum, eldfærum, skarti, vefnaði, mataráhöldum og verkfærum. 

Börnin kynnast aðferðum fornleifafræðinnar og hvernig draga má ályktanir af rannsóknum.

 Fræðsluleiðina um landnámið er hægt að tengja við heimsókn á handritasýninguna Heimur í orðum  í Eddu og Landnámssýninguna Aðalstræti, en þar er líka boðið upp á fræðslu fyrir sama aldurshóp um landnám Íslands sem kallast vel á við heimsókn í Þjóðminjasafnið.

 Nánari upplýsingar og bókanir á heimasíðu Þjóðminjasafns Íslands: https://www.thjodminjasafn.is/skolaheimsoknir/grunnskoli-midstig eða í gegnum netfangið kennsla@thjodminjasafn.is 

Skipuleggjandi:
Þjóðminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Listir
Læsi
Saga
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
10 ára
  - 12 ára