Skip to main content

Kjarval leiksýning

Borgarleikhúsið býður öllum nemendum 5. bekkjar í grunnskólum Reykjavíkurborgar, ásamt kennurum og leiðbeinendum, á leiksýninguna Kjarval sem sýnd er á Litla sviði Borgarleikhússins.

Um sýninguna

Flestir þekkja nafn listmálarans Jóhannesar Kjarval, en hver var hann og hvernig varð sveitadrengur fæddur í torfbæ á 19. öld að einum þekktasta listamanni sem Ísland hefur alið? Leikgerð Borgarleikhússins byggir m.a. á frábærri bók Margrétar Tryggvadóttir um listamanninn. Nánari upplýsingar um sýninguna: https://www.borgarleikhus.is/syningar/kjarval

 

Sýningin er sýnd í febrúar og mars 2027. Skráningarhlekkur er sendur út á skólana. 

Skipuleggjandi:
Borgarleikhús
Staðsetning:
Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir
Efnisflokkur:
Listir
Tímabil:
Febrúar
  - Mars
Aldur:
10 ára
  - 11 ára