Orð og mynd | Frístund
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Borgarsögusafn Reykjavíkur
Frístund
Léttur leikur sem felst í því að skoða ljósmyndir og tengja orð eða hugtök við þær. Við rýnum í viðfangsefni myndanna og sjáum hvert myndlesturinn leiðir okkur.
Safnkennari stýrir heimsókninni með virkri aðstoð frístundaleiðbeinenda hópsins. Heimsóknin felst í umræðum og léttum leik inni í sýningarsal safnsins um leið og ljósmyndasýning safnsins er skoðuð.
Hlutverk frístundaleiðbeinenda í heimsókninni er að hvetja börnin til að taka þátt í umræðum og leikjum.
Opið fyrir bókanir: Bóka skólahóp
Nánari upplýsingar á hopar.borgarsogusafn@reykjavik.is
Deila

Skipuleggjandi:
Borgarsögusafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Leikir og útivist
Listir
Læsi
Tímabil:
Janúar
- Desember
Aldur:
6 ára
- 12 ára