Skip to main content

Safn og skip

1 – 10. bekkur

Sérstök heimsókn á Sjóminjasafnið fyrir stóra hópa. Fræðsla um sýninguna Fiskur & fólk og varðskipið Óðinn.

Eingöngu fyrir stærri hópa. Við bjóðum upp tvískipta heimsókn milli safns og skips. Tekið er á móti hópnum á 1. hæð Sjóminjasafnsins, við afgreiðslu. Kennarar skipta hópnum í tvennt og tveir safnkennarar sjá um fræðslu á báðum stöðum.

Þá er nauðsynlegt að það komi a.m.k. tveir kennarar/starfsmenn frá skólanum með hópnum. Lágmark 30 - hámark 50 nemendur.

Heimsóknin er í 1 ½ klst.

Í boði frá 1. mars - 31. október (Háð veðri) 
Skipið er tímabundið lokað í september 2026 vegna viðhalds. Það opnar aftur 14. október, og opið verður fyrir bókanir til 14. nóvember, ef veður leyfir. Vinsamlegast athugið að ekki hefur verið opnað fyrir bókanir frá 1. mars 2027, heldur verður það gert þegar nær dregur. Hægt er að bóka frá 1. apríl, en mars verður opinn fyrir bókanir um leið og veður leyfir.

Bókanir: Bóka hóp á Sjóminjasafni
Nánari upplýsingar á vefsíðu safnsins og hopar.borgarsogusafn@reykjavik.is 

Skipuleggjandi:
Borgarsögusafn, Sjóminjasafnið í Reykjavík
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Saga
Tímabil:
Mars
  - Október
Aldur:
6 ára
  - 16 ára