Skip to main content

Sögustund með Sleipni

Sögustundir fyrir elstu deild í leikskóla að hausti. 

Komdu með á hugarflug! 

Á haustin býðst leikskólakennurum að panta lestrarstund með Sleipni í Borgarbókasafninu Grófinni fyrir elstu börnin í leikskólanum. Við kynnum Sleipni fyrir börnunum og ræðum um kraft ímyndunaraflsins, skáldskapinn, ævintýrið, lestraránægjuna og hugarflugið sem lestur býður upp á. 

Sagan Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju og Gunnar Karlsson er lesin upp ásamt fleiri sögum. Að lokinni lestrarstund með Sleipni: 

  • Börnin fá Sleipnisbókamerki 
  • Leikskólakennarar fá Vetrarævintýri Sleipnis með heim ásamt hugmyndabanka Sleipnis 
  • Foreldrar / forráðamenn fá skilaboð um að barnið hafi hitt Sleipni og þau eru hvött til að lesa fyrir börnin 

 

Bókanir og nánari upplýsingar veitir:
Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir
anna.magnusdottir.eirunardottir@reykjavik.is | 411-6138

Skipuleggjandi:
Borgarbóksafnið, Grófinni
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Læsi
Tímabil:
September
  - Nóvember
Aldur:
5 ára