Skip to main content

Sögustund með Zetu

Borgarbókasafnið Grófinni

Námskeið um meðferð bóka fyrir 4-6 ára

Zeta er lítil bókavera sem býr á safninu. Í fyrstu sögustund vetrarins fá börnin að heyra söguna af því hvernig Zeta varð til og rataði í Borgarbókasafnið. Hún veit allt um bókasafnið og kennir börnunum að fara vel með bækur. Zeta veit ekkert skemmtilegra en að hlusta á góðar sögur og bíður því spennt eftir því þegar börnin koma í sögustund.

Þegar börnin koma til að heyra aðrar sögur tekur Zeta ávalt á móti þeim, hlustar með þeim á söguna sem barnabókaverðirnir bjóða upp á hverju sinni og kveður með smá glaðningi.

Nánari upplýsingar veitir:
Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir
anna.magnusdottir.eirunardottir@reykjavik.is | 411-6138

Skipuleggjandi:
Borgarbóksafnið, Grófinni
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Læsi
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
4ra ára
  - 7 ára