Skip to main content

Stjörnu-Sævar með Sinfóníuhljómsveitinni | 5. - 10. bekkur

Nánari upplýsingar og bókanir á skólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands fara fram á heimasíðu hljómsveitarinnar, nánar hér.

Um tónleikana 
Á tónleikunum förum við í ferðalag til sólarinnar og tunglsins og njótum glæsilegrar tónlistar um leið. Við skoðum hvernig sólarljósið verður til, hvernig sólin fæddist og hvernig hún býr til norðurljósin. Síðan höldum við til tunglsins, skoðum tignarlegan dans mánans um jörðina og hvernig tunglið er að hægja á snúningi jarðar. Hver veit nema sól- og tunglmyrkvar komi við sögu?

Tónleikatímar: 
Þriðjudagur 16. febrúar 2027 
11:00
Miðvikudagur 17. febrúar 2027 
9:30 
11:00

Skipuleggjandi:
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Listir
Tímabil:
Febrúar
Aldur:
10 ára
  - 16 ára