Vorferð fyrir grunnskóla │ 1. - 4. bekkur
Árbæjarsafn | Borgarsögusafn Reykjavíkur
1.-4. bekkur
Skemmtileg og fræðandi vorheimsókn fyrir stóra hópa (max 60) þar sem útivera í einstöku og öruggu umhverfi safnsins er í aðalhlutverki.
Fræðslan fer fram í gegnum stöðvavinnu á útisvæði safnsins. Mikilvægt er að kennari fylgi hverjum hóp: 8 – 12 nemendur í hverjum hóp. Nemendur læra að taka til hendinni eins og vinnufólk áður fyrr, glöggva sig á sögu Árbæjar og læra um kjörgripi í gegnum ratleik.
Fræðslan tekur 50 – 60 mín. Nesti er etið utandyra eftir fræðslu.
Gert er ráð fyrir að heimsóknin sé ekki lengri en 2 klst. í heild sinni og er háð veðri.
Opnum fyrir bókanir 1. febrúar 2027.
Í boði frá 18.maí - 4.júní 2027.
Opið fyrir bókanir: Árbæjarsafn
Nánari upplýsingar á hopar.borgarsogusafn@reykjavik.is
Deila